LÖG ODDGEIRS KRISTJÁNSSONAR OG JÓNS MÚLA ÁRNASONAR Í FLUTNINGI LÚÐRASVEITAR REYKJAVÍKUR

Sunnudagur 23. október 2011

Tónleikar Lúðrasveitar Reykjavíkur í Neskirkju, þriðjudaginn 25. október kl. 20.00, eru til heiðurs tveimur af ástsælustu tónskáldum þjóðarinnar á síðustu öld, þeim Oddgeiri Kristjánssyni og Jóni Múla Árnasyni. Samanlagt hefðu þessir heiðursmenn orðið 190 ára í ár.

Oddgeir Kristjánsson og Jón Múli ÁrnasonBáðir voru miklir lúðrasveitamenn. Oddgeir var fæddur árið 1911 og starfaði í Vestmannaeyjum. Hann var stofnfélagi og stjórnandi Lúðrasveitar Vestmannaeyja frá stofnun hennar árið1939 til dánardags árið 1966. Jón Múli var fæddur 1921. Hann var trompetleikari í Lúðrasveit Reykjavíkur, Lúðrasveit Verkalýðsins og Sinfóníuhljómsveit Ísland. Hann var einnig stofnfélagi Lúðrasveitar Verkalýðsins.

Lög þessara manna þekkja allir landsmenn. Þjóðhátíðarlög Oddgeirs eru sígild og til að mynda er hljómdiskur með lögum Oddgeirs frá árinu 1968, í flutningi Sextetts Ólafs Gauks enn að seljast. Söngleiki Jóns Múla og Jónasar bróður hans, þekkja flestir sem eru eldri en tvæ vetur og nutu þeir mikilla vinsælda og hafa verið fluttir víða um land.

Oddgeirslögin sem flutt verða eru öll í upprunalegri útsetningu tónskáldsins, en hafa verið raddsett af Ásgeiri Sigurðssyni klarinettuleikara á Selfossi. Lög Jóns Múla eru útsett af Þóri Baldurssyni, sem lærði sem barn á alt horn hjá Guðmundi Nordahl þáverandi tónlistarkennara í Keflavík, sem einmitt leikur á klarinett með L.R. í kvöld.

Stjórnandi Lúðrasveitar Reykjavíkur er Lárus Halldór Grímsson. Kynnar á tónleikunum verða Hafsteinn Guðfinnsson, tengdasonur Oddgeirs, og Ragnheiður Gyða, dóttir Jóns Múla.

Tónleikarnir verða í Neskirkju þriðjudaginn 25.október, kl.20:00. Aðgangseyrir að tónleikunum er 1.500 kr.

Samband íslenskra lúðrasveita skrifaði þetta klukkan 20:42
Flokkur: Almennt  |


MARSATÓNLEIKAR LÚÐRASVEITARINNAR SVANS OG LÚÐRASVEITAR VERKALÝÐSINS

Mánudagur 10. október 2011

Lúðrasveitin Svanur og Lúðrasveit Verkalýðsins halda sameiginlega marsatónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur miðvikudaginn 12. október kl. 20.

Á tónleikunum verða marsar af frönskum og norskum uppruna áberandi auk þess sem nýr mars, Snæri, eftir Þórunni Guðmundsdóttur verður frumfluttur. Snæri er ekki dæmigerður mars og lúðrasveitirnar munu ýmist vefjast tvær saman eða rakna í sundur.

Stjórnendur eru Brjánn Ingason og Kári Húnfjörð Einarsson

Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis

Samband íslenskra lúðrasveita skrifaði þetta klukkan 23:10
Flokkur: Almennt  |


SVANURINN Í HÖRPU 16. MAÍ 2011

Föstudagur 6. maí 2011

Lúðrasveitin Svanur heldur vortónleika í Eldborg, aðalsal Hörpu, þann 16. maí kl. 20.

Sveitarmeðlimum þótti við hæfi að heiðra minningu fyrrum stjórnanda sveitarinnar og heiðursfélaga, Karls O. Runólfssonar, í hinu glæsta tónleikahúsi og hefja tónleikana með verki hans FANFARE MARS. Lúðrasveitin Svanur hefur leitast við að flytja ný íslensk verk og að þessu sinni verður verkið RÆTUR eftir Veigar Margeirsson frumflutt í útsetningu Tryggva M. Baldvinssonar. Einleikari með sveitinni í verkinu er Sigurður Flosason saxófónleikari sem lék með sveitinni á sínum yngri árum.

Meðal annarra verka sem flutt verða á tónleikunum eru FIRST SUITE IN E FLAT eftir Holst, BOJARENES INNTOGSMARSJ eftir Johan Halvorsen, BESAME MUCHO eftir Consuelo Velázquez og STAR WARS SAGA eftir John Williams í útsetningu Johan de Mey.

Stjórnandi er Brjánn Ingason.

Hlökkum til að sjá ykkur í Hörpu!

Kveðja, Lúðrasveitin Svanur

Miðasala á www.harpa.is og www.midi.is – miðaverð er 2.500 kr.

Samband íslenskra lúðrasveita skrifaði þetta klukkan 0:08
Flokkur: Almennt  |


Popp/Rokk tónleikar Lúðrasveitar verkalýðsins

Miðvikudagur 30. mars 2011

Lúðrasveit verkalýðsins býður ykkur velkomin á árlega vortónleika sína sem að þessu sinni verða haldnir í hátíðarsal Menntaskólans við Hamrahlíð, þann 2. apríl nk.
Þema tónleikanna í ár er popp- og rokktónlist og ætlum við því að flytja lög tónlistarmanna á borð við Lady Gaga, Muse og Queen, svo eitthvað sé nefnt.

Tónleikarnir eru ókeypis og bjóðum við alla fjölskylduna velkomna! :-)

Hlökkum til að sjá ykkur,
Lúðrasveit verkalýðsins

Samband íslenskra lúðrasveita skrifaði þetta klukkan 14:11
Flokkur: Almennt  |


Vortónleikar Lúðrasveitar Hafnarfjarðar

Þriðjudagur 29. mars 2011

Vortónleikar Lúðrasveitar Hafnarfjarðar verða haldnir í Gaflaraleikhúsinu, Strandgötu 50 (gömlu Vélsmiðju Hafnarfjarðar) föstudagskvöldið 8. apríl kl. 20:00.

Á efnisskránni fer mikið fyrir suðrænum tónum og svítum af ýmsu tagi, meðal annars Svíta nr. 2 fyrir lúðrasveit eftir Gustav Holst, þjóðdansasvíta eftir Dmitríj Sjostakóvítsj og lokadansinn úr Estancia eftir Alberto Ginastera. Að sjálfsögðu verða einnig marsar á efnisskránni, m.a. eftir John Philip Sousa, auk þess sem þrír trompetleikarar stíga fram og spila Bugler’s holiday eftir Leroy Anderson.

Stjórnandi Lúðrasveitar Hafnarfjarðar er Rúnar Óskarsson.

Aðgangseyrir er kr. 1000.

Samband íslenskra lúðrasveita skrifaði þetta klukkan 10:44
Flokkur: Almennt  |


Áblástur 2011

Fimmtudagur 24. mars 2011

Tónleikar LR og LÞLúðrasveit Reykjavíkur og Lúðrasveit Þorlákshafnar leiða saman lúðra sína og sameinast í rúmlega 80 manna stórblásarasveit um og eftir helgina. Saman munu þau halda tvenna tónleika: Í Langholtskirkju sunnudaginn 27. mars kl. 17 og í Íþróttamiðstöð Þorlákshafnar mánudaginn 28. mars kl. 20.

Á efnisskránni eru verk eftir þekktustu tónskáld blásarasveitatónlistar síðustu ára, þá Frank Erickson, Clare Grundman, Alfred Reed, Jan Van der Roost, Gioacchino Rossini og Gustav Holst.

Verkin á efnisskránni eru:
OVERTURE JUBILOSO eftir Frank Erickson, HEBRIDES SUITE eftir Clare Grundman, RUSSIAN CHRISTMAS MUSIC og FIFTH SUITE FOR BAND eftir Alfred Reed, LA DANZA eftir Gioacchino Rossini og hin glæsilega svíta Gustav Holst, FIRST SUITE IN Eb. Öll þessi verk eru vel þekkt og skrifuð fyrir stóra blásarasveit.

Stjórnendur á tónleikunum eru Róbert A. Darling og Lárus Halldór Grímsson.

Aðgangseyrir 1.500 kr.

Samband íslenskra lúðrasveita skrifaði þetta klukkan 14:24
Flokkur: Almennt  |


Nýárstónleikar Lúðrasveitar Þorlákshafnar

Mánudagur 27. desember 2010

Lúðrasveit Þorlákshafnar kemur fram í hátíðarbúningi og heldur nýárstónleika þann 2. janúar kl. 17 í Ráðhúsi Ölfuss.

Vínartónlist verður í hávegum höfð og leikur lúðrasveitin fræga Vínartónlist í skemmtilegum útsetningum.

Ásamt lúðrasveitinni koma fram:
- Margrét Stefánsdóttir söngkona
- Leikfélag Ölfuss
- Danspör

Lúðrasveitin hefur sjaldan verið í betra formi og telur nú 38 meðlimi.
Stjórnandi er Róbert A. Darling

Aðgangseyrir er 1.500 kr.

Samband íslenskra lúðrasveita skrifaði þetta klukkan 11:16
Flokkur: Almennt  |


Aðventutónleikar Svansins

Fimmtudagur 2. desember 2010

Lúðrasveitin Svanur heldur sína árlegu aðventutónleika í Árbæjarkirkju næstkomandi laugardag, 4. desember kl. 15:00. Efnisskráin er jólaleg að þessu sinni en inn á milli jólalaganna mun Rúnar Óskarsson leika Concert For Clarinet eftir Artie Shaw.

Stjórnandi Svansins er Brjánn Ingason.

Miðaverð er 1500 kr.
1000 kr. fyrir börn, námsmenn og eldri borgara.
Frítt er fyrir börn yngri en 8 ára.

Boðið verður upp á kakó og smákökur að tónleikum loknum. Hlökkum til að sjá sem flesta.

Samband íslenskra lúðrasveita skrifaði þetta klukkan 19:31
Flokkur: Almennt  |


Marsatónleikar

Þriðjudagur 16. nóvember 2010

Laugardaginn 20. nóvember næstkomandi halda Lúðrasveitin Svanur og Lúðrasveit verkalýðsins sameiginlega marsatónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur og hefjast tónleikarnir klukkan 15. Fyrir réttu ári síðan stóðu þessar sveitir að slíkum tónleikum í fyrsta sinn og voru undirtektir slíkar að full ástæða þótti til að endurtaka leikinn.

Lúðrasveitirnar munu leika marsa á víxl af miklum móð og verður víða komið við í marsabókmenntunum. Unnendur marsa munu örugglega ekki sjá á eftir því að gera sér ferð í Ráðhúsið þennan eftirmiðdag.

Á tónleikunum verður meðal annars fluttur glænýr mars eftir Einar Jónsson básúnuleikara og stjórnanda Skólalúðrasveitar Grafarvogs. Marsinn er saminn sérstaklega fyrir þessa tónleika og heitir Gengið á regnbogann. Það sem gerir mars Einars einstakan er að lúðrasveitirnar kallast á í marsinum og keppa þar meira að segja á stundum. Mun þetta vera í fyrsta skipti á Íslandi að því er fróðustu menn þekkja að mars er saminn fyrir 2 lúðrasveitir.

Stjórnandi Lúðrasveitarinnar Svans er Brjánn Ingason og stjórnandi Lúðrasveitar verkalýðsins er Snorri Heimisson.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.

Sjá nánar á heimasíðu Lúðrasveitar verkalýðsins og viðburð á Facebook

Samband íslenskra lúðrasveita skrifaði þetta klukkan 23:37
Flokkur: Almennt  |


Tónleikar Lúðrasveitar Reykjavíkur

Mánudagur 15. nóvember 2010

Lúðrasveit Reykjavíkur heldur tónleika í Neskirkju mánudaginn 15. nóvember 2010 kl. 20:00.
Þema tónleikanna er að þessu sinni hollensk blásarasveitatónlist.

Aðgangseyrir 1.500 kr. fyrir fullorðna / frítt fyrir börn yngri en 12 ára.

Samband íslenskra lúðrasveita skrifaði þetta klukkan 13:16
Flokkur: Almennt  |


Næsta síða »